Meistaramót GM í holukeppni, Titleist-holukeppnin, er eitt skemmtilegasta mót ársins.
Mjög einfalt að taka þátt, þú einfaldlega skráir þig til leiks. Eftir að skráningarfrest líkur þá er dregið um það hvaða kylfingar mætast í fyrstu umferð. Keppt er í karla og kvennaflokki.
Skráning í mótið fer fram á GolfBox og greiðist mótsgjald við skráningu. Kylfingar skrá sig sjálfir á rástíma í gegnum GolfBox.
Kylfingar leika sín á milli með fullri forgjöf en hámarks forgjöf gefin er eins og fyrr sagði 36, (vallarforgjöf).
Dæmi: Kylfingur A er með 7 í vallarforgjöf og kylfingur B með 24 í vallarforgjöf. Þá er mismunurinn 17 (Kylfingur B fær þá 1 högg í forgjöf á 17 erfiðustu holurnar).
titleist holukeppnin - leikreglur.pdf